Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

Klukkan

Innskráningar kubbur

Gagnasafn

Teljari

The great seal of truth is simplicityJóhann Axel Schram Reed



Between the black sky and the blue...Jóhann Axel Schram Reed



Sometimes it takes a storm

To really know the light
The scent of rain
The weight of clouds
Pulling down the sky
Sometimes it takes a storm
To know how you feel

Stundum er maður of upptekinn af því að laga þá hluti sem ekki eru nógu góðir, svo maður getur ekki notið þeirra blessanna sem maður þegar á.

Guð er nefnilega svo sniðugur að nota erfiða tíma til að vinna í manni og laga þá hluti sem ekki eru nógu góðir. Það er ekki alltaf auðvelt, en maður kemur þó út úr því reynslunni ríkari, vonandi búinn að læra eitthvað.

Alveg eins er þegar skelfiskur, svona eins og við finnum stundum í fjöru, opnar sig í vatninu til að nærast, þá flýtur stundum inn eitt sandkorn. Það er það sársaukafyllsta sem skelfiskur getur upplifað. En hann umlykur sandkornið, pússar það og sléttir, leggur svo lag ofan lag á það, og að lokum stendur eftir fögur perla, eftirsótt um allan heim.

Lífið okkar getur verið heill sandkassi af erfiðleikum, en það sem skiptir máli er hvernig við tökum á þeim. Látum við erfiðleikana og sársaukann yfirbuga okkur, eða tökum við á því, lærum af og komum út betri manneskjur?

Svo með tímanum söfnum við í heila festi af perlum; viskuperlum sem nýtast okkur alla ævi. :)

-Jasser

Könnun

Linsur eða gleraugu?

Atburðarteljari

Tenglar

Leit