Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

Klukkan

Innskráningar kubbur

Gagnasafn

Teljari

Vetrar-Vanga-VelturJóhann Axel Schram Reed

Ég elska snjó.

Alltaf þegar ég lít á snævi þakta jörðina, sé hvernig steinarnir hafa öðlast nýja, hvíta ábreiðu og hvernig eitt og eitt baráttustráið berst fyrir því að haldast í augsýn, get ég ekki annað en hugsað til kærleika Guðs.

Snjór og kærleikur eiga nefnilega svolítið sameiginlegt. Þeir breiða yfir hluti. Snjórinn þekur landslagið, sekkur inn í þrengstu sprungurnar, fyllir dýpstu holurnar og felur allt það sem ekki gleður augað. Hann breiðir hann út angana, tekur tilhlaup og hlammar sér ofan á allt og alla og allt verður fallegt á ný. Við sjáum ekki ljóta grýtið, eða gula grasið, eða trjágreinar sem sakna laufanna sinna. Allt er fullkomið.

Þannig er kærleikur Guðs. Við getum verið eins ófullkomin og hægt er, við getum verið með djúpar sprungur í sálinni og hjartað gæti verið dýpsta hola sem fyrirfinnst, en þegar kærleikur Guðs fyllir okkur, breiðir yfir okkur og umvefur, skiptir hitt engu máli. Við erum heil. Við erum falleg. Við fullkomnumst í hans kærleika.

Þó hitnar brátt í veðri og snjórinn mun að lokum lúta öflum náttúrunnar, en kærleikurinn...

...Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi!

-Jasser


Svefnvenjur & sýklalyfJóhann Axel Schram Reed

Stundum er lífið bara skondið...

Ætli maður komist ekki einn dag  á stað þar sem maður býst ekki við að neitt komi manni á óvart lengur...að maður hafi séð allt, upplifað allar tilfinningar...en svo gerist eitthvað...ekkert endilega eitthvað stórt...en getur haft gríðarleg áhrif...

Dæmi? ég veit ekki...kannski.......eins og....að brenna sig á hleðslutæki........sofandi.....og ekki vakna....fá svo sýkingu......þurfa að fara á afskaplega óspennandi pensíllín-kúr.......Ullandi

Ótrúlegt segiru?  Ó nei, vinur minn.....það vill einmitt svo skemmtilega til að allt þetta að ofantöldu kom fyrir mig fyrir nokkrum dögum...og einhvernveginn hef ég það á tilfinningunni að þessu verði seint gleymt...og missi seint skemmtana-ígildi meðal vina minna....en það er víst bara þannig...Glottandi

Þetta er víst ein af þessum reynslum sem maður hugsar til baka og hristir einfaldlega hausinn og hugsar: "hvernig í ósköpunum.....!"

Ég vona að ég eigi eftir að eiga margar svoleiðis reynslur í viðbót.....sem ekki innihalda pensillín...er það til of mikils mælst?

maður spyr sig...
-Jasser 

Smá þriðjudagsljóð...Jóhann Axel Schram Reed

Stundum
finnst mér eins og ég sé bók
sem enginn getur alveg lesið
nema höfundurinn

Stundum
líður mér eins og landakorti
í vitlausum hlutföllum
Ég veit aldrei almennilega hvert ég stefni

Stundum
þarf ég að einblína á það góða
fela það erfiða í Þínar hendur
og dvelja öllum stundum
í þinni náð.


What we are is God's gift to us. What we become is our gift to God.

 

Könnun

Linsur eða gleraugu?

Atburðarteljari

Tenglar

Leit