Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

Klukkan

Innskráningar kubbur

Gagnasafn

Teljari

Return to BlogtropolisJóhann Axel Schram Reed

 Gleðilegt nýtt ár kæru vinir, og takk fyrir liðinn tíma!

Nú þegar nýtt ár gengur í garð tíðkast, sem og á árum áður, að setja sér einhverskonar heit eða taka ákvörðun um eitthvað sem maður ætlar að breyta eða gera í lífi sínu. Jú, ég hef ákveðið að taka stórt skref og lýsa því yfir að ég muni blogga a.m.k. einu sinni á hverju ári framvegis! Jú gott fólk, við erum að tala um eitt heilt, óstytt og magnað blogg á HVERJU ÁRI!! Geri aðrir betur....

En svona að öllu gríni slepptu, þá ætla ég nú að reyna að bæta mig í því að skipuleggja einhvern tíma til að geta bloggað oftar.

Vá, maður er algerlega dottinn út úr þessum heim. Sú var nú tíðin að sólin settist ekki hvern dag áður en maður bloggaði og skoðaði önnur blogg þar sem maður taldist fastagestur. Nú er maður heppinn ef maður nær að skoða eitthvað nokkrum sinnum á mánuði.

Reyndar kvarta ég nú ekki of mikið. Ég verð nú að vera sammála honum félaga mínum Jóni Gnarr, eða Gnarra eins og ég kýs að kalla hann, að því leytinu að flest blogg nú til dags, með nokkrum undantekningum, eru bara svo svakalega einhæf og misskemmtileg! Mér finnst ég alltaf vera að lesa það sama, fólk að kvarta yfir hinu og þessu sem gengur á í samfélaginu, og flest allt byggt á misgóðum upplýsingum og miður mótuðum skoðunum! Ojæja, það er víst bara þannig.

Þannig að ég felli nú ekki mörg tár, en hinsvegar finnst mér alltaf jafn skemmtilegt að blogga sjálfur, þannig að ég ætla að reyna að bæta mig í þeim liðnum.

Annars voru jólin og áramótin svolítið öðruvísi hjá mér þetta árið. Þetta er í fyrsta skipti sem ég vinn yfir jólin, hef yfirleitt haft frekar mikinn frítíma til að slappa af og vera með fjölskyldunni, en ekki þessi jól. Þessi jól var maður vinnandi maður alla daga, stundum í fleiri en einni vinnu, og í nógu að stússast heima fyrir í stórframkvæmdum á salerninu. Mér líður svona hálfpartinn eins og þetta hafi allt farið framhjá mér, og ég eigi ennþá eftir að setjast niður og átta mig á þessu öllu saman. Á einum degi er komið nýtt ár, 2008, og allt það sem það ber í skauti sér. Er það bara ég, eða færast tímans hendur með auknum hraða eftir því sem lengra líður?

Maður spyr sig..
-Jasser

Athugasemdir

1
Anna Lilja skrifar:
Það var kominn tími til félagi :) Skemmtilegt blogg hér á ferð og ég hlakka til að lesa meira frá þér á næstu VIKUM! ;)
06. janúar 2008 klukkan 17:50
2
Tinna Schram skrifar:
Þokkalega samlokan sem vinnur! En Tempus Fugits...hvað er það ?

Ég byrja að blogga líka já......
18. janúar 2008 klukkan 01:28
3
Allsi skrifar:
http://mauk.myminicity.com/
http://mauk.myminicity.com/
http://mauk.myminicity.com/
http://mauk.myminicity.com/
http://mauk.myminicity.com/
http://mauk.myminicity.com/
http://mauk.myminicity.com/
http://mauk.myminicity.com/
http://mauk.myminicity.com/
http://mauk.myminicity.com/http://mauk.myminicity.com/http://mauk.myminicity.com/http://mauk.myminicity.com/
21. janúar 2008 klukkan 17:22

Skrifa athugasemd

Könnun

Linsur eða gleraugu?

Atburðarteljari

Tenglar

Leit